fimmtudagur, 30. október 2008

NEI!!!!!!!!!!!!

Hvurs konar framkoma er þetta? Á mörlandinn ekki einu sinni að geta drekkt sorgum sínum í sæmilega drekkanlegu áfengi? Erum við að tala um að mar þurfi að fara drekka landa? Illa bruggaðan í plastbrúsa?
Nei. Nei. NEI!
Nú og ef svo fer þá þekki ég fólk sem kann þann gjörning að brugga góðan landa. Þannig að ég slepp vonandi við brunabragðið.
Skál!!!

miðvikudagur, 29. október 2008

Hjalið...

...og stöðugur viðreksturinn í dóttur geimverunnar er nokkurn veginn það eina sem heldur sönsum í geimverunni. Ef ekki væri um það að ræða væri geimveran farin niður í bæ að leita sér að leppalúðum að berja. Leppalúðum sem hefur greinilega færst fullmikið í hendur, tekið að sér verkefni sem þeir ráða ekki við, en hafa náð að þyrla upp nógu ryki til að fela vanhæfni sína svo árum skiptir.
Audda hefði mar átt að sjá í gegnum þetta en ætli mar hafi bara ekki viljað trúa því frekar að það gengi allt bara vel, fólk væri að standa sig í bísness og svona og þetta væri allt undir stöðugu og góðu eftirliti.
En allavega. Bakaði brauð í morgun, írskt súrmjólkurbrauð, sko mínus vínsteinn (creme de tartar). Kauðslegara kvikindi hefur varla sést hnoða í deig. Tókst þó fyrir rest og þetta leit líka svona vel út í ofninum, þessi líka vel lagaði hleifur. Alveg var hleifurinn jafnfallegur þegar hann var settur á grindina til kælingar.
Bragðprufur tókust með ágætum, allavega við ystu sneiðarnar. Hins vegar reyndist kvikindið vera óbakað í miðjunni, bara pjúra deig þar. En svo lærir sem lifir. Næst verður hitinn bara lækkaður lítið eitt og brauðið látið damla lengur. Kannski spurning um að sleppa blæstrinum, þótt mar tími því varla, svona þegar mar getur valið það til að byrja með.
Blástursofn! Hver hefði trúað því að mar ætti eftir að búa yfir svoleiðis kraftaverki!
Og hvernig í ósköpunum kemst allt þetta loft fyrir í svona litlum búk? Get svo svarið það að stúlkan er að ná föður sínum í viðrekstrinum.
Skál!!!

þriðjudagur, 21. október 2008

Yfirdrifnara...

...verður það varla!
Facebook færir þér mátt til að deila og gerir heiminn okkar opnari og samtengdan
Spurning um að fara ráða einhvern verkstjóra og yfirlesara á þetta þýðingarsamstarfsverkefni þarna á Fésinu. 'Færir þér mátt til að deila!' Fyrr má nú aldeilis! Akkuru færir þetta manni bara ekki mátt til að drottna og deila, eða var það deila og drottna? Mar bara spyr sig. Ætla svo ekki að tjá mig um síðari hluta þessarar setningar. Hún talar fyrir sig sjálf!
Ótrúlegt hvað reynt er að ljúga að manni í fjölmiðlum þessa lands. Bogi Ágústs að taka viðtal við danska kvikmyndaleikstýru.
Nei sko! Konur kunna ekkert að leikstýra, hvað þá ef þær eru danskar.
Nei, hér er greinilegt að ríkisstjórnin er að nota ríkisfjölmiðilinn til að dreifa athygli okkar frá hinum raunverulegu vandamálum dagsins í dag; Einokun ríkisins á áfengis- og vímuefnasölu og ótrúlega vanhæfni stjórnenda strætó.
Er alveg miður mín yfir þessu.
Skál!!!

Djöfullinn!!!

Það var eitthvað sem ég ætlaði svoleiðis að kvarta yfir en er nú búinn að steingleyma hvað er.
Ohh jæja. Það kemur örugglega til með að hrjá mig aftur. Og þá verður sko kvartað!
Skál!!!

laugardagur, 18. október 2008

Hausinn...

...á mér var í dag svo uppfullur af sjitti sem mig vantaði að pirra mig á. Svo loxins sest mar fyrir framan skjáinn og þá er hann jafn tómur og gjaldeyrissjóður landsins, hausinn, það er, og skjárinn þá næstum því líka.
En Grímur, bróðir geimverunnar, kom þó með geislann sem lýsti upp tilveruna í dag. Þótt ég sé auðvitað ekki að gleyma gerseminni sem úgglar og gúgglar gleði í kringum sig. :)
Allavega kom drengurinn með hugmynd vikunnar. Auðvitað á ekkert að rífa þessar spíttverksmiðjur sem er verið að bösta. Á þessum síðustu og verstu á notturlega að þjóðnýta svoleiðis. Þjóðnýta og stækka. Fáranlegar upphæðir sem hægt er að safna í gjaldeyri með útflutningi vímuefna.
Markaðsstarfið er löngu hafið. Á árum geimverunnar á Næsta bar var einmitt verið að tala um viðskiptatækifæri með Íslandsræktað maríjúana, vörumerki og þess háttar. Man reyndar bara eftir Austfjarðarþokunni, en fleiri góð voru nefnd til sögunnar. Spíttið gæti þá verið t.d. nefnt Strikklotan eða Baugar.
Annars er geimveran að fara taka slátur á morgun. Allt gert til að draga úr áhrifum kryppunnar. Kannski að hægt sé að selja líka eitthvað af þessu til að draga úr áhrifum kreppunnar.
En nú er geimveran bara farin að bulla. Best að láta staðar numið.

Barlómur og eintómt bull sem bylja á eyrum dag og nótt, bráðum valda bólgu og sótt og gengisfelldum sull. Sem betur fer er vor belgur sver, hann ber oss fram í desember. Þá jólaljóð og eplin rjóð kæta vora þjóð. Eða ekki.

Skál!!!

föstudagur, 10. október 2008

Leirburður

Með tóman pung hann töltir hýr
og trallar dægrin löng.
Lánalínu þarf sá fýr
eða ljúfa kreditspöng.

Yfirdráttur, skuldabréf,
víxill eða tékki,
skuldabaggi, lánaþref,
hver þekkir'ett'ikki!

Höfundur:
Skuldaklafinn

Skál!!!

Innhverfan...

...kom í veg fyrir að ég gæti farið í útrás. Og svo kemur hún einnig í veg fyrir að ég geti skriðið inn í skelina og gleymt óförum annarra.
Ó mig auman!
Skál!!!

fimmtudagur, 9. október 2008

Það...

...er ekki miklu við orðavaðal síðustu daga að bæta.
Jú, kannski einu.
Skál!!!

mánudagur, 6. október 2008

Fyrst frétt mbl.is...

...af ávarpi forsætisráðherra.
'Geir H. Haarde, forsætisráðherra, flytur sjónvarpsávarp til þjóðarinnar.

hver þjóð hugsar um sinn eigin hag. Skuldbindingar þeirra nema margfaldri þjóðarframleiðslu Íslands. Hamfarir ríða. Stærð bankanna þeirra helsti veikleiki.
'

Mar fellur í öngvit yfir þessari stjörnublaðamennsku.

Skál!!!

Viðbragðsflýti...

...markaðsdeildar RÚV er ótrúleg. Búin að selja slatta af auglýsingum fyrir ávarp forsætisráðherra. Nánast eins og upplýsingum um tímasetningu ávarpsins hafi verið lekið fyrir löngu í yfirmenn markaðsdeildarinnar.
Auðseljanlegra auglýsingapláss er varla til, nema þá fyrir áramótaskaupið. Og við...ööö Ríkið græðir.
Skál!!!

laugardagur, 4. október 2008

8 mínútur...

...er kannski langur tími í pólitík. Aftur á móti getur þessi stutta stund verið gulls ígildi fyrir kviðvöðva heimsins.
Jútjúbaði þetta frábæra myndband. Geimveran kallar þetta myndband því á því formi kom þetta út.
Nú gæti einhver spurt sig hvernig geimveran býr yfir þessum upplýsingum.
Jú, geimveran eyddi einu ári í Bellevue, úthverfi borgarinnar Seattle í Washington-fylki í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Eftir nokkurra mánaða dvöl var miðbik geimverunnar farið að þenjast helst til mikið út að framan. Greip því geimveran til þess örþrifaráðs að verða sér út um eintak af átta-mínútna-kviðvöðvum gegn vægri greiðslu.
Viti menn, eftir nokkrar lotur fyrir framan imbann fór þetta að bera árangur. Hver hefði trúað því að líkamleg hreyfing gæti grennt mann.
Því miður misfórst myndbandsspólan þegar heim var haldið. En aldrei þessu vant hefur internetið komið geimverunni að gagni. Þessi gimsteinn fortíðarinnar er kominn í leitirnar og þar með er geimveran lögst í gólfið á ný.
Endilega nýtið ykkur líka. Kostar minna en kort í ræktina.
Njótið!

Skál!!!
P.S. Það er með vilja gert að skilja eftir mynd af geimverunni löðursveittri á vömbinni fyrir framan örskjá fartölvunnar að herða á kviðnum í huga þeirra er þetta lesa.

miðvikudagur, 1. október 2008

Miskild'etta...

...eitthvað. Skaut skelk í bringu. Gaurinn lá bara í blóði sínu eftir það. Er á flótta undan fjársveltri réttvísinni. Það reddar manni að þeir leggja áherslu á leit í þeim lögregluumdæmum sem eru vel sett fjárhagslega. Þess vegna ætti ég að geta sinnt litlu geimverunni í einhvern tíma hérna á höfuðborgarsvæðinu. Verð samt að fylgjast með umræðum um fjárlög.
Skál!!!