laugardagur, 24. janúar 2009

Mislestur...

...dauðans.
Hef alltaf lesið 'Holltnesti' á spjaldi sjoppunnar hérna í bakgarðinum á Suðurbrautinni. Að sjálfsögðu hef ég því nánast verið á beit þar. 'Fjölskyldutilboð og eitthvað handa konunni og krakkanum' og allt það.
Áttaði mig svo á því að þarna stóð 'Holtanesti'. Sem er notturlega réttnefni því það hefur alveg eins og þruma úr heiðskíru lofti vaxið holt framan á mér.
Ó mig auman!
Skál!!!

föstudagur, 23. janúar 2009

Hvernig...

...skilgreinir mar heiðarlega lyftuþjónustu? Hefur mikið borið á óheiðarlegum lyftuþjónustum?
Mar spyr sig.
Skál!!!

fimmtudagur, 22. janúar 2009

Geir...

...er búinn að senda ryksugubíla Borgarinnar til að ryksuga upp leiðindin í liðinu. Get svo svarið það. Sá einn keyra á gangstéttinni fyrir utan Café París við Pósthússtræti í áttina að Austur-gasvelli.

miðvikudagur, 21. janúar 2009

Í...

...mér leynist skríll!
Skál!!!

þriðjudagur, 23. desember 2008

Óska...

...þeim örfáu hræðum sem nenna að fylgjast með stopulum og arfaslökum innslögum geimverunnar gleðilegrar hátíðar.
Njótið óhófsins.
Skál!!!

laugardagur, 20. desember 2008

Hef...

...Deezu frænku grunaða um að vera haldin fordómum gagnvart fólki sem er ekki sömu skoðunar og hún. Hún er allavega búin að loka fyrir athugasemdir hjá sér.
Síðan var spurning um að ræða verð á bleyjum. Veit samt ekki hvernig. Þarf að hugsa þetta betur.
Bulla floggið hveður.
Skál!!!

sunnudagur, 14. desember 2008

Ætlaði...

...að mótmæla í dag. Fattaði fimm mínútur í þrjú að ég bý ekki lengur í miðbænum.
That's how this seatrip ended!
Skál!!!