miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Eins...

...og fram kom í athugasemd við athugasemd Friðsemdar systur í ævafornri færslu hér að neðan þá er andleg auðnin með yfirhöndina í andans afkimum vorum.
Er mar lítur inn í sálartetrið er þar umlitis eins og í gríðarstórum tómum helli. Helli sem svo er laus við eitthvað sem líkist hugmyndauðgi að þangað leita ekki einu sinni leðurblökur endurminninganna. Leðurblökur nostalgíunnar sem láta mann að minnsta kosti nöldra yfir því hvað allt var frábærara í gær en í dag.
Er skammdegið virkilega að draga niður gluggatjöldin í gluggum þess sem kallast gæti frjó hugsun, eða er mar bara búinn að vera vinna of mikið? Eða drekkur mar ekki nóg? Eða hvað?
Hvað sem því líður þá tókst manni allavega að skíta þessum orðum og skeina sig með bloggrullunni. Það hlýtur að teljast dögun í blogghelli Geimverunnar.
Vonum það.
Farinn heim að tyggja nýsjálenska nautalund með kokteilsósu.
Skál!!!

4 ummæli:

Friðsemd sagði...

Hérna getur huggað þig við þessa framtíðarsýn http://youtube.com/watch?v=-9p6Zp1Gsh0

Geimveran Tjess sagði...

Var búinn að sjá þetta. :)

Nafnlaus sagði...

Já var það ekki,þið eruð alltaf svo framarlega á merinni þarna á klakanum. Spurning um að fara að spenna reiðtygin á annan hátt hérna í DK til að maður geti verið með...;)

Geimveran Tjess sagði...

Það er ekki það að ég sé eitthvað framarlega á merinni í þessum málum. Aðallega það að einstaka kvikindi á msninu mínu er djúpt sokkið í youtube-skvaldur. :)